Golfvellir í nágrenni Torrevieja á Spáni

Fyrir þá sem hafa áhuga á golfi þá  er upplagt að leggja leið sína til okkar á Cabo Roig svæðið á Costa Blanca ströndinni. Þar er auðvelt að sameina það að fara í golf og eiga skemmtilegt frí í einstakri veðurblíðu. Við getum aðstoðað ykkur við að skipuleggja ferðina svo að hún verði sem ánægjulegust. 

Það má með sanni segja að Costa Blanca svæðið sé draumur golfarans vegna þess að þar er mikill fjöldi frábærra golfvalla þar sem allir golfarar geta fundið skemmtilega velli við sitt hæfi. Margir vallanna á svæðinu eru glæsilega hannaðir, þar sem fer saman fallegt landslag, mikill trjágróður og ótrúlegar vatnshindranir. Tveir þekktustu golfarar Spánar, Seve Ballesteros og Jose Maria Olazabal hafa tekið þátt í hönnun margra þeirra. Vellirnir eru mjög mismunandi, opnir, þröngir, stuttir, langir og því einkar skemmtilegt að spila á sem flestum til að fá sem mesta fjölbreytni.

Það eru 3 mjög þekktir golfvellir í um 5 km fjarlægð frá La Rotonda íbúðahótelinu í Cabo Roig, Campoamor, Las Ramblas og Villamartin. Aðrir 10 vellir eru svo  innan við 20 mínútna akstur frá hótelinu svo sem: La Finca, Lo Romero, Las Colinas, Roda, Vistabella, Mosa Trajectum og La Serena.

Í Campoamor er flott Golfbúð þar sem hægt er að kaupa hreinlega allt til golfiðkunar. Þar er líka hægt að panta tíma á teig á öllum völlum á svæðinu með afslætti og leigja sér golfsett.  Þjónustan í búðinni er til fyrirmyndar og mælum við hiklaust með að golfarar notfæri sér hana.

Nánari upplýsingar:    https://galaxygolfco.com/pages/campoamor-store

Campoamor: 18 holur, par 72, 6203 metrar.

Skemmtilegur sveitavöllur sem liggur í tveimur dölum sem gerir það að verkum að það er yfirleitt logn á vellinum. Völlurinn er frekar opinn og því hægt að slá langt á honum en flatirnar eru mjög hraðar sem gerir hann erfiðan. Glæsilegt klúbbhús er við völlinn og þar er að finna gott veitingahús. Rétt við klúbbhúsið er SPA og líkamsrækt.

Nánari upplýsingar:   http://lomasdecampoamor.es/en

Las Ramblas: 18 holur, par 72, 5914 metrar.

Mjög erfiður en skemmtilegur völlur þar sem brautirnar eru þröngar með miklum trjágróðri í hæðóttu landslagi. Mikið er um vatnshindranir sem gera golfurum erfitt um vik. Þetta er völlur sem golfarar annað hvort elska eða hata. Eitt er víst að það er nauðsynlegt að vera með nóg af golfkúlum.

Nánari upplýsingar:   https://www.lafincaresort.com/golf/las-ramblas

Villamartin: 18 holur, par 72, 6132 metrar.

Mjög skemmtilegur völlur í hæðóttu landslagi sem reynir mjög á hæfni golfarans og er óhætt að segja að það þurfi að nota allar kylfurnar í pokanum. Þessi völlur hefur verið notaður á Evrópsku mótaröðinni.

Nánari upplýsingar:   http://www.golfquara.com/golf-villamartin/villamartin.htm



Vistabella Golf: 18 holur, par 72, 6075 metrar.


Völlurinn er hannaður af Manuel Piñero, fyrrum þátttakanda á Evrópumótaröðinni í golfi. Vistabella er golfvöllur fyrir alla. Glæsilegar brautir, krefjandi glompur, rennisléttar flatir og vatnstorfærur gera þennan völl að einum af þeim skemmtilegasta á svæðinu. Veitingastaðurinn er góður með gott útsýni yfir völlinn.


Nánari upplýsingar: https://vistabellagolf.com/en/


Las Colinas: 18 holur, par 71, 5517 metrar.

Þetta er bandarískur völlur með opnum og breiðum brautum. Þessi völlur hefur verið notaður á úrtöku mótum fyrir evrópsku mótaröðina. Það er mjög gaman að spila völlinn en hann hentar bæði vönum og óvönum. Las Colinas er með þeim dýrari á svæðinu, hringurinn kostar 85 - 120 evrur, en öll aðstaða og þjónusta á vellinum er til fyrirmyndar. Æfingasvæðið er mjög gott og bílarnir eru með gagnvirkum skjám sem sýna lengdir og upplýsingar um völlinn.

La Finca: 18 holur, par 72, 6394 metrar.

Nýr völlur sem er sennilega einn skemmtilegasti völlurinn á svæðinu. Erfiðar vatnshindranir, þúsundir pálmatrjáa og fjölbreytilegt landslag gera það að verkum að þetta er völlur sem allir alvöru golfarar verða að spila á. Flötin á sjöundu braut er umkringd glompum,  fimmta og sjötta braut liggja meðfram fallegu vatni og það eru nokkrir fossar á vinstri hönd sem setja mikinn svip á völlinn.

Nánari upplýsingar:   https://www.lafincaresort.com/golf

Lo Romero: 18 holur, par 72, 6061 metrar.

Bandarískur völlur með breiðum brautum. Þægilegur að spila og ætti að henta flestum, 18. brautin er glæsileg, par 4 með flötina á eyju. Skemmtilegur völlur. Æfingasvæðið er mjög gott. Í bílum eru spjaldtölvur með lengdum og upplýsingum um völlinn.

Roda: 18 holur, par 72, 6077 metrar.

Mjög fallegur völlur í glæsilegu landslagi. Skemmtilegasta brautin er sú sjöunda en þar er flötin á eyju sem er alveg umkringd vatni og það eru bara fjórar brautir sem eru ekki með vatnshindrunum.

Mosa Trajectum: 27 holur, 3 x 9 holur og stuttur kennsluvöllur.

Þarna er í raun hægt að spila þrjá mismunandi velli sem eru fjölbreyttir og skemmtilegir. Mikið er af trjám og vatnshindrunum sem gera völlinn mjög áhugaverðan. Fyrir nokkrum árum var lokamót Evrópumótaraðarinnar á þessum velli.

La Serena: 18 holur, par 72, 6168 metrar.

Þessi glæsilegi völlur hefur þá sérstöðu að hann er alveg niður við Costa Blanca ströndina við bæinn Las Alcazares. Mikill trjágróður er á vellinum, stórar og erfiðar glompur og sérstaklega stórar flatir. Glæsilegt klúbbhús er við völlinn og þar er mjög gott veitingahús.

Nánari upplýsingar:   http://laserenagolf.es/

Upplýsingar um aðra golfvelli á svæðinu er að finna á eftirfarandi síðum og einnig eru hér helstu síðurnar til að bóka rástíma:


https://www.ontee.com/en/

Að leigja golfsett

Margir möguleikar eru á að leigja golfsett, við mælum með heimasíðunni: https://costablancagolfclubhire.co.uk/   Þeir koma með golfsettin þangað sem fólk vill, hvort sem það er á hótelin eða í íbúðir þar sem fólk dvelur eða beint á golfvellina þegar fólk á rástíma og sækja þau þegar dvöl lýkur. Leiguverð hjá þeim er allt frá 60 evrum á viku og þau bjóða líka upp á kylfur sem eru einni tommu lengri, fyrir hávaxna kylfinga. 

Það getur verið góður valkostur að leigja sett á svæðinu ef margir eru saman og mikill farangur með í för. Ég vil því mæla með https://costablancagolfclubhire.co.uk/  Ég hef leigt af þeim nokkrum sinnum og fengið frábæra þjónustu og flott golfsett á góðu verði. Þeir bjóða upp á að keyra golfsettið til þín og sækja aftur, á fyrir fram umsömdum tímum.

Latest comments

24.10 | 10:32

Sæll Ásgeir. Handboltaskólinn verður haldinn sumarið 2023. Sendu mér tölvupóst á netfangið: arnistef@simnet.is
Þá mun ég senda þér allar upplýsingar.

23.10 | 21:10

Sæll. Gæti ég fengið upplýsingar um hvort handboltaskóli verði haldinn sumarið 2023?

12.09 | 16:08

Góðan dag, er hægt að sækja um 2 hús í Villa Martin Spáni á sama tíma

06.04 | 14:26

Sæl Ragnhildur. Sendu mér tölvupóst á netfangið arnistef@simnet.is

Share this page