Í nágrenni Cabo Roig eru margar frábærar strendur sem tilheyra Costa Blanca ströndinni (Hvítu ströndinni) og þar er samkvæmt Alþjóða Heilbrigðisstofnuninni
(WHO) besta veðurfar í allri Evrópu.
Sú strönd sem er næst La Rotonda er Playa Caleta, en það tekur um 8 min. að ganga niður að henni og er þá gengið niður frá hringtorginu, Torrevieja-megin við hótelið, eftir götunni Avenida del Ancla. Þetta er mjög góð strönd í skjóli í vík milli tveggja höfða þar sem hægt er að kaupa ýmsar veitingar og þar stutt frá er einnig smábátahöfn þar sem hægt er að stunda ýmsar vatnaíþróttir.
La Zenia ströndin sem er ein sú vinsælasta á svæðinu er beint niður af næsta hringtorgi ef ekið er í átt til Torrevieja. Hún er um 350 metra löng, þar eru veitingastaðir og barir þar sem hægt er að kaupa hressingu langt fram á kvöld.
Playa de la Regia ströndin er í hina áttina frá hótelinu og tekur það um 15 -20 min að ganga að henni. Þar er glæsileg smábátahöfn með miklum fjölda af skútum allt árið um kring. Þarna er hægt að stunda flestar gerðir af vatnaíþróttum. Þar eru einnig veitingastaðir og strandbarir.
Hægt er að ganga meðfram strandlengjunni eftir sérstökum göngustígum bæði í norður og suður og nær sú gönguleið í tugi kílómetra í hvora átt. Mjög gaman er að ganga þessa leið, fylgjast með iðandi mannlífinu og svo er einnig skemmtilegt að setjast inn á einhvern af hinum fjölmörgu veitingastöðum sem eru á leiðinni eða fá sér hressingu á kaffihúsi.
Latest comments
24.10 | 10:32
Sæll Ásgeir. Handboltaskólinn verður haldinn sumarið 2023. Sendu mér tölvupóst á netfangið: arnistef@simnet.is
Þá mun ég senda þér allar upplýsingar.
23.10 | 21:10
Sæll. Gæti ég fengið upplýsingar um hvort handboltaskóli verði haldinn sumarið 2023?
12.09 | 16:08
Góðan dag, er hægt að sækja um 2 hús í Villa Martin Spáni á sama tíma
06.04 | 14:26
Sæl Ragnhildur. Sendu mér tölvupóst á netfangið arnistef@simnet.is